Staða þjóna Hraðapróf G-Panel-1 G-Panel-2

Ég kemst ekki inn á þjóninn

Farðu yfir þessi atriði ef leikurinn nær ekki að tengjast.

Uppfært 3. nóvember 2026 22 skoðanir

Farðu yfir þessi atriði í þessari röð:

1. Er þjónninn í gangi?

Á þjónustusíðunni á að standa Í gangi. Nýræstur þjónn getur þurft eina til tvær mínútur áður en hann tekur við tengingum. Í Console sést þegar hann er tilbúinn.

2. Er tengingin rétt?

Afritaðu tenginguna með Afrita takkanum á þjónustusíðunni í stað þess að slá hana inn. Í Minecraft Bedrock fer portið í sér reit (Port), ekki aftast í Server Address.

3. Allow list (whitelist)

Ef þjónninn er með allow list kemst enginn inn sem er ekki á listanum. Í Minecraft Bedrock er allow list stundum kveikt sjálfgefið, og þá birtist viðvörun um það í Console. Smelltu á Opna stjórnborð, farðu í Console og sendu:

allowlist add Nafnið_þitt

eða slökktu á listanum með allowlist off.

4. Sama útgáfa?

Leikurinn þinn og þjónninn þurfa að vera á sömu útgáfu. Ef þú færð skilaboð eins og Outdated client eða Outdated server er útgáfan ekki sú sama.

5. Netið hjá þér

Sum net, t.d. í skólum eða á vinnustöðum, loka á leikjatengingar. Prófaðu annað net, eða keyrðu hraðaprófið til að sjá hvort þú náir sambandi við okkur.

Fannstu ekki svarið?

Sendu okkur þjónustubeiðni og við hjálpum þér.

Opna þjónustubeiðni