Pulseflare ehf. KT 5201263680 veitir stafræna þjónustu, þar á meðal en ekki takmarkað við leikjaþjónahýsingu, sýndarþjóna, vefhýsingu og tengda innviðaþjónustu („Þjónustan").
Umsýsla reikninga, pantana og þjónustu fer fram í gegnum Heimasíðuna.
Með notkun þjónustunnar staðfestir þú að:
þú sért að minnsta kosti 18 ára, eða
hafir heimild til að skuldbinda lögaðila.
Viðskiptavinir bera ábyrgð á að upplýsingar á aðgangi séu réttar.
Reikningar og greiðslur eru unnar í gegnum Heimasíðuna.
Vanskil geta leitt til tímabundinnar lokunar eða uppsagnar þjónustu.
Greiðslur eru óendurkræfar nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta verðskrá með hæfilegum fyrirvara.
Áskriftir eru almennt óendurgreiðanlegar eftir að virkjunartímabil hefst.
Í undantekningartilvikum getur Pulseflare ehf. veitt endurgreiðslu að eigin mati, svo sem ef:
tæknileg bilun á okkar vegum hefur komið í veg fyrir notkun þjónustunnar
þjónusta var ekki afhent eins og lofað
Beiðnir um endurgreiðslu skulu sendar á pulseflare@pulseflare.is innan 7 daga frá upphaflegri greiðslu.
Hlutaendurgreiðslur vegna uppsagnar á áskriftartímabili eru ekki veittar.
Við áskildum okkur rétt til að hafna beiðnum um endurgreiðslu ef brotið hefur verið gegn skilmálum þjónustunnar.
Óheimilt er að nota þjónustuna til:
ólöglegra athafna samkvæmt íslenskum eða evrópskum lögum
dreifingar spilliforrita, phishing, ruslpósts eða annarrar misnotkunar
athafna sem geta haft áhrif á stöðugleika kerfa eða aðra viðskiptavini
Við áskiljum okkur rétt til að grípa til aðgerða, þar á meðal lokunar, ef brot verða á þessum skilmálum.
tilkynning á misnotkun sendist á pulseflare@pulseflare.is eða abuse@pulseflare.is
Þjónustan er veitt á bestu mögulegu forsendum (best effort).
Á þessu stigi veitir Pulseflare ehf. enga þjónustustigsamninga (SLA) né tryggingu fyrir uppitíma nema það sé sérstaklega samið um skriflega.
Viðhald, uppfærslur og breytingar geta átt sér stað án fyrirvara.
Viðskiptavinir bera sjálfir ábyrgð á gögnum sínum og afritun.
Við tryggjum ekki varðveislu gagna við lokun, uppsögn eða bilanir.
Eyðing gagna getur verið endanleg.
Að því marki sem lög leyfa:
berum við ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni
heildarábyrgð okkar takmarkast við þá fjárhæð sem greidd hefur verið fyrir þjónustuna síðustu 30 daga
Við getum lokað eða sagt upp þjónustu ef:
brot verða á skilmálum
greiðslur berast ekki
þjónustan skapar áhættu fyrir innviði eða aðra
Viðskiptavinir geta sagt upp þjónustu í gegnum Heimasíðuna og tölvupóst pulseflare@pulseflare.is.
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra þessa skilmála. Notkun þjónustunnar eftir breytingar telst samþykki.