Staða þjóna Hraðapróf G-Panel-1 G-Panel-2

Þjónninn fer ekki í gang

Svona finnurðu ástæðuna og lagar hana.

Uppfært 3. nóvember 2026 20 skoðanir

Ef þjónninn fer ekki í gang, eða slekkur strax á sér aftur, er svarið nær alltaf í Console.

1. Skoðaðu Console

Opnaðu Console á þjónustusíðunni og skoðaðu síðustu línurnar. Leitaðu að línum sem innihalda ERROR, Exception eða Failed. Þær segja yfirleitt hvað fór úrskeiðis.

2. Algengar ástæður

  • Nýtt plugin eða mod: ef þjónninn hætti að fara í gang eftir að þú settir eitthvað inn, fjarlægðu það síðasta og ræstu aftur. Á stjórnborðinu: farðu í Files, opnaðu plugins (eða mods), hægrismelltu á skrána og veldu Delete. Plugins og mods þurfa að passa við útgáfu þjónsins.
  • Minnið er fullt: ef Vinnsluminni á þjónustusíðunni er alveg fullt, eða Console sýnir OutOfMemoryError, þarf þjónninn meira minni eða færri mods.
  • Gagnaplássið er fullt: ef Gagnapláss er fullt getur þjónninn ekki vistað og fer ekki í gang. Eyddu gömlum skrám eða afritum af heimum.
  • Skemmd stillingaskrá: ef þú breyttir nýlega stillingaskrá, t.d. server.properties, athugaðu hvort eitthvað hafi misritast. Þú getur opnað og lagað skrána beint í Files á stjórnborðinu.

3. Endurheimtu afrit

Ef ekkert annað virkar geturðu endurheimt afrit frá því áður en vandamálið byrjaði. Sjá greinina um afrit.

Ef þú finnur ekki lausnina, sendu okkur þjónustubeiðni og afritaðu síðustu 20 til 30 línurnar úr Console með.

Fannstu ekki svarið?

Sendu okkur þjónustubeiðni og við hjálpum þér.

Opna þjónustubeiðni