Lagg er af tveimur gerðum og lausnin fer eftir því hvor þeirra það er.
Lagg í tengingu (hátt ping)
Allt hikstar, leikmenn hoppa til og það tekur tíma að brjóta kubba. Þetta lagast ekki á þjóninum heldur í tengingunni.
- Keyrðu hraðaprófið og skoðaðu pingið.
- Notaðu snúru í stað Wi-Fi ef þú getur.
- Lokaðu forritum sem nota netið mikið, t.d. niðurhali eða streymi.
Lagg á þjóninum
Allir finna fyrir því á sama tíma, og þjónninn hægir á sér. Í Minecraft birtist oft Can't keep up! í Console.
- Skoðaðu Vinnsluminni og Örgjörva á þjónustusíðunni. Ef þau eru alltaf nálægt hámarki þarf þjónninn meira.
- Í Minecraft er hægt að lækka
view-distanceogsimulation-distanceíserver.properties, t.d. í 8 og 6. Það minnkar álagið mikið. Opnaðu skrána í Files á stjórnborðinu, breyttu og smelltu á Save. - Mörg eða þung plugins og mods auka álagið. Prófaðu að taka út það sem þú notar ekki.
- Endurræstu þjóninn reglulega, t.d. einu sinni á dag.
Ef þjónninn þarf meira minni, sendu okkur þjónustubeiðni og við finnum réttu stærðina með þér.