Með SFTP geturðu hlaðið upp og sótt skrár á þjóninn með forriti í tölvunni, t.d. heima, plugins, mods og stillingaskrár. Það hentar vel fyrir stórar skrár og margar í einu.
Upplýsingarnar sem þú þarft
Á þjónustusíðunni, undir Skráaaðgangur (SFTP):
- Þjónn: IP talan sem þú tengist.
- Port: notaðu portið sem stendur á síðunni (
2022), ekki 22. - Notandanafn: notandanafnið þitt, punktur og stutt auðkenni þjónsins, t.d.
nafn.1a2b3c4d. Afritaðu það í heild með Afrita. Það er ekki það sama og netfangið þitt. - Lykilorð: lykilorðið þitt á stjórnborðinu.
Sömu upplýsingar eru líka á stjórnborðinu: farðu í Files, smelltu á Connect og veldu via SFTP.
Ertu ekki með lykilorð?
Ef þú skráir þig inn á stjórnborðið í gegnum Pulseflare ertu ekki með lykilorð þar fyrr en þú býrð það til. Þá stendur á þjónustusíðunni að þú þurfir að setja lykilorð.
- Smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu á síðuna Account.
- Undir Password: þar sem þú ert ekki með lykilorð er enginn reitur fyrir núverandi lykilorð. Sláðu nýja lykilorðið inn tvisvar og smelltu á Update.
Í stað lykilorðs geturðu líka bætt við SSH lykli á síðunni SSH Keys.
FileZilla
- Opnaðu File → Site Manager og smelltu á New Site.
- Protocol: veldu SFTP - SSH File Transfer Protocol.
- Settu inn Host og Port af þjónustusíðunni.
- Logon Type: veldu Normal. Settu inn User og Password.
- Smelltu á Connect.
WinSCP
- Í glugganum Login, veldu New Site.
- File protocol: SFTP.
- Settu inn Host name, Port number, User name og Password.
- Smelltu á Login.
Fyrsta tenging: „Unknown host key“
Í fyrsta sinn sem þú tengist spyr forritið hvort þú treystir þjóninum. Það er eðlilegt. Smelltu á OK í FileZilla (hakaðu við Always trust this host) eða Accept í WinSCP. Þá spyr það ekki aftur.
Kemst ekki inn?
- Authentication failed: athugaðu að notandanafnið sé allt, með punktinum og auðkenninu, og að lykilorðið sé lykilorðið á stjórnborðinu. Ef þú ert nýbúin(n) að búa til lykilorð, prófaðu aftur.
- Connection refused eða timeout: athugaðu að port sé
2022en ekki 22, og að Protocol sé SFTP en ekki FTP. - Tengingin slitnaði: ef þú breytir lykilorðinu lokast opnar SFTP tengingar. Tengstu bara aftur með nýja lykilorðinu.
- Ef stjórnborðið biður þig að staðfesta netfangið þitt þarf að gera það áður en SFTP virkar.
Án SFTP forrits
Þú getur líka hlaðið upp og sótt skrár beint í vafranum: smelltu á Opna stjórnborð og farðu í Files. Dragðu skrár inn á síðuna eða notaðu New → File from Upload.
Ábending: stöðvaðu þjóninn og taktu afrit áður en þú skiptir út heimi eða stórum skrám.