Afrit er afrit af öllum skrám þjónsins eins og þær voru á þeirri stundu. Taktu afrit áður en þú uppfærir þjóninn, setur inn plugins eða mods, eða skiptir út heimi. Þá geturðu alltaf farið til baka.
Taka afrit
- Farðu á þjónustusíðuna og finndu Afrit.
- Smelltu á Taka afrit. Afritið fær nafn með dagsetningu og tíma, t.d. Afrit 03.11.2026 14:30.
- Afritunin getur tekið nokkrar mínútur eftir stærð þjónsins. Afritið birtist í listanum þegar því er lokið.
Ábending: öruggast er að taka afrit þegar þjónninn er stöðvaður, eða að minnsta kosti þegar enginn er að spila. Þá er heimurinn örugglega vistaður.
Hversu mörg afrit?
Við hliðina á fyrirsögninni sérðu hversu mörg afrit þú ert með af hve mörgum, t.d. (1 af 1). Þegar þú hefur notað öll afritin er ekki hægt að taka nýtt fyrr en þú eyðir eldra afriti.
Fjölda afrita velurðu þegar þú pantar þjóninn. Ef þú vilt fleiri afrit síðar, sendu okkur þjónustubeiðni.
Sækja afrit
Smelltu á Sækja við afritið. Það hleðst niður sem þjöppuð skrá, yfirleitt .tar.gz. Á Windows geturðu opnað hana með 7-Zip.
Gott er að sækja mikilvæg afrit og geyma þau líka í tölvunni þinni.
Eyða afriti
Smelltu á Eyða og staðfestu. Það er ekki hægt að afturkalla.
Endurheimta afrit
- Smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu í Backups.
- Hægrismelltu á afritið (eða notaðu valmyndina aftast í línunni) og veldu Restore.
- Veldu hvort Delete existing files á að vera kveikt:
- Kveikt: öllum skrám er eytt fyrst og þjónninn verður nákvæmlega eins og þegar afritið var tekið. Þetta er yfirleitt rétta valið ef heimur eða uppsetning skemmdist.
- Slökkt: skrárnar úr afritinu skrifa yfir núverandi útgáfur, en skrár sem bættust við eftir að afritið var tekið haldast.
- Ef rofinn Restore startup settings birtist geturðu líka endurheimt stillingarnar í Startup eins og þær voru.
- Staðfestu. Þú sérð framvinduna á stjórnborðinu og getur ræst þjóninn þegar endurheimtunni er lokið.
Allar breytingar á heiminum eftir að afritið var tekið tapast. Ef þú ert ekki viss, taktu fyrst nýtt afrit af stöðunni eins og hún er núna (ef þú átt laust pláss), eða sæktu skrárnar sem þú vilt halda.