Staða þjóna Hraðapróf G-Panel-1 G-Panel-2

Stillingar og æfingar á CS2 þjóni

Kort, leikhamur, lykilorð og skipanir fyrir æfingar.

Uppfært 4. nóvember 2026 18 skoðanir

Stillingarnar finnurðu á stjórnborðinu: smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu í Startup.

  • Server Name: nafnið sem birtist í listanum.
  • Server Password: lykilorðið sem leikmenn slá inn. Hafðu það alltaf á æfingaþjóni.
  • Map: kortið sem þjónninn byrjar á, t.d. de_mirage eða de_inferno.
  • Max Players: hámarksfjöldi leikmanna.
  • Gamemode og Gametype: leikhamurinn (sjá töflu).
  • Enable RCON og RCON Password: fyrir stjórnun með utanaðkomandi forritum.
LeikhamurGametypeGamemode
Competitive01
Wingman02
Casual00
Deathmatch12
Arms Race10

Endurræstu þjóninn eftir breytingar.

Skipta um kort

Opnaðu Console á þjónustusíðunni og skrifaðu t.d. changelevel de_nuke. Kortið breytist strax.

Æfingar (scrims og nade practice)

Skrifaðu þessar skipanir í Console á þjónustusíðunni:

  • sv_cheats 1: kveikir á æfingaskipunum.
  • mp_warmup_end: hættir upphitun.
  • mp_roundtime_defuse 60: lengir lotuna í 60 mínútur.
  • mp_buy_anywhere 1 og mp_buytime 9999: kaupa hvar og hvenær sem er.
  • sv_infinite_ammo 1: endalaus skot og sprengjur.
  • sv_grenade_trajectory_prac_pipreview 1: sýnir hvert sprengjan lendir.
  • bot_kick: tekur alla bota út.
  • mp_restartgame 1: byrjar leikinn upp á nýtt.

Til að fara aftur í venjulegan leik: endurræstu þjóninn.

Fannstu ekki svarið?

Sendu okkur þjónustubeiðni og við hjálpum þér.

Opna þjónustubeiðni