CS2 þjónn þarf Steam lykil (Game Server Login Token, GSLT) til að virka eðlilega og birtast í listanum yfir netþjóna. Lykillinn er ókeypis og þú býrð hann til á þínum Steam aðgangi.
Búa til lykil
- Skráðu þig inn á Steam og farðu á steamcommunity.com/dev/managegameservers.
- Í App ID skrifarðu
730(það er CS2). - Í Memo skrifarðu eitthvað sem minnir þig á þjóninn, t.d.
Pulseflare æfingaþjónn. - Smelltu á Create og afritaðu lykilinn (Login Token).
Setja lykilinn inn
- smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu í Startup.
- Límdu lykilinn í Steam Gameserver Login Token.
- Endurræstu þjóninn.
Gott að vita
- Einn lykill fyrir hvern þjón. Ekki nota sama lykilinn á tveimur þjónum.
- Lykillinn tengist þínum Steam aðgangi, svo ekki deila honum.
- Steam aðgangurinn má ekki vera takmarkaður (limited).
- Ef lykillinn hættir að virka geturðu búið til nýjan á sömu síðu (Regenerate) og sett hann inn aftur.