Staða þjóna Hraðapróf G-Panel-1 G-Panel-2

Nafn, lykilorð og leikmenn í Windrose

Breyttu nafni þjónsins, lykilorðinu og fjölda leikmanna.

Uppfært 4. nóvember 2026 19 skoðanir

Helstu stillingarnar finnurðu á stjórnborðinu: smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu í Startup.

  • Server Name: nafnið á þjóninum.
  • Password Protected: settu 1 til að krefjast lykilorðs.
  • Server Password: lykilorðið sem leikmenn slá inn. Það virkar bara ef Password Protected er 1.
  • Max players: hámarksfjöldi leikmanna í einu.
  • Auto Update: 1 uppfærir þjóninn þegar hann ræsir sig. Hafðu þetta kveikt svo þjónninn sé alltaf í sömu útgáfu og leikurinn.

Endurræstu þjóninn eftir breytingar.

Ábending: þessar stillingar eru skrifaðar í R5/ServerDescription.json í hvert sinn sem þjónninn ræsir sig. Breyttu þeim því í Startup, ekki beint í skránni.

Hvað þarf mikið vinnsluminni?

Samkvæmt framleiðanda leiksins:

  • 8 G: um 2 leikmenn
  • 12 G: um 4 leikmenn
  • 16 G: um 10 leikmenn

Ef þjónninn verður hægur eða hrynur þegar margir eru inni, sendu okkur þjónustubeiðni og við hjálpum þér að stækka hann.

Fannstu ekki svarið?

Sendu okkur þjónustubeiðni og við hjálpum þér.

Opna þjónustubeiðni