Staða þjóna Hraðapróf G-Panel-1 G-Panel-2

Stillingar og vistanir í Satisfactory

Settu inn eigin vistun, breyttu fjölda leikmanna og veldu útgáfu.

Uppfært 4. nóvember 2026 17 skoðanir

Setja inn eigin vistun

  1. Opnaðu Server Manager í leiknum og veldu þjóninn.
  2. Farðu í Manage Saves og smelltu á Upload Save.
  3. Veldu vistunina af tölvunni og hladdu henni svo inn á þjóninn.

Í Manage Saves geturðu líka sótt vistanir af þjóninum.

Stillingar á stjórnborðinu

smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu í Startup:

  • Max Players: hámarksfjöldi leikmanna. Leikurinn er gerður fyrir 4, en hægt er að hafa fleiri ef þjónninn ræður við það.
  • Number of Rotating Autosaves: hversu margar sjálfvirkar vistanir eru geymdar.
  • Automatic Updates: 1 uppfærir þjóninn þegar hann ræsir sig. Hafðu þetta kveikt.
  • Branch Name: hafðu tómt fyrir venjulegu útgáfuna. Settu experimental ef þið spilið Experimental útgáfuna.

Endurræstu þjóninn eftir breytingar.

Stillingar í leiknum

Nafn þjónsins, lykilorð og sjálfvirk hlé (auto pause) stillirðu í Server Manager → Server Settings.

Vinnsluminni

Satisfactory þarf meira vinnsluminni eftir því sem verksmiðjan stækkar. 8 G dugar til að byrja, en fyrir stórar verksmiðjur eða fleiri en 4 leikmenn er mælt með 16 G. Sendu okkur þjónustubeiðni ef þú þarft meira.

Fannstu ekki svarið?

Sendu okkur þjónustubeiðni og við hjálpum þér.

Opna þjónustubeiðni