Leikjaþjónarnir okkar eru á Íslandi. Til að sjá hvernig tengingin frá þér er, opnaðu hraðaprófið okkar:
Þú finnur það líka efst á síðunni undir Hraðapróf.
Hvað þýða tölurnar?
- Ping er tíminn sem það tekur gögn að fara til okkar og til baka, í millisekúndum (ms). Því lægra, því betra. Lágt ping þýðir lítið lagg í leiknum.
- Niðurhal og upphal sýna hraðann á tengingunni þinni.
Ábending: prófaðu með snúru ef þú getur. Wi-Fi getur hækkað pingið.