Stillingarnar finnurðu á stjórnborðinu: smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu í Startup.
- Server Name og Server Description: nafn og lýsing þjónsins.
- Server Password: lykilorðið sem leikmenn slá inn. Hafðu reitinn tóman ef ekki á að vera lykilorð.
- Admin Password: lykilorð stjórnanda (sjá hér að neðan).
- Max Players: hámarksfjöldi leikmanna, mest 32.
- Auto Update:
1uppfærir þjóninn þegar hann ræsir sig. Hafðu þetta kveikt. - Connection Platform:
Steamsjálfgefið. Breyttu þessu bara ef þið spilið á Xbox.
Endurræstu þjóninn eftir breytingar.
Gerast stjórnandi
- Settu lykilorð í Admin Password og endurræstu þjóninn.
- Í leiknum: opnaðu spjallið og skrifaðu
/AdminPassword lykilorðið.
Þá geturðu notað stjórnandaskipanir, t.d. /Save til að vista heiminn.
Vinnsluminni
Palworld notar meira vinnsluminni eftir því sem hann er lengur í gangi og fleiri spila. 8 G dugar fyrir lítinn hóp, en framleiðandinn mælir með 16 G fyrir stærri hópa. Það hjálpar líka að endurræsa þjóninn reglulega. Sendu okkur þjónustubeiðni ef þú þarft meira.