1. Flyttu heiminn út úr leiknum
- Í Minecraft: smelltu á blýantinn við heiminn og veldu Export World. Þá færðu
.mcworldskrá. - Endurnefndu skrána úr
.mcworldí.zip.
2. Hladdu honum upp á stjórnborðinu
- Stöðvaðu þjóninn og taktu afrit á þjónustusíðunni.
- Smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu í Files.
- Tvísmelltu á möppuna
worldstil að opna hana. - Smelltu á New → Directory og búðu til möppu fyrir heiminn, t.d.
Heimurinn minn. Opnaðu hana. - Dragðu
.zipskrána inn á síðuna, eða smelltu á New → File from Upload. - Hægrismelltu á zip skrána, veldu Extract og afþjappaðu í sömu möppu. Eyddu svo zip skránni.
3. Veldu heiminn
Settu nafn möppunnar (t.d. Heimurinn minn) í level-name í server.properties og ræstu þjóninn.
Svona breytirðu server.properties
- Smelltu á Opna stjórnborð neðst á þjónustusíðunni og farðu í Files.
- Smelltu á
server.properties. Skráin opnast í ritli. - Breyttu línunni og smelltu á Save (eða
Ctrl+S). - Endurræstu þjóninn.
Í Console sérðu hvaða heimur er opnaður, t.d. Opening level 'worlds/Heimurinn minn/db'.
Eða með SFTP
Afþjappaðu zip skrána í tölvunni, hladdu möppunni upp í worlds og breyttu level-name eins og að ofan.